#komið #skilorðsbundnum #nauðgunardómum!
Á undanförnu ári hafa fallið dómar í fleiri en einu hrottalegu nauðgunarmáli þar sem refsing gerandans var skilorðsbundin að fullu (sakborningurinn sleppur alfarið við fangelsisvist.)
Það gengur gróflega gegn réttlætiskennd almennings að fólk geti framið hrottafengin kynferðisbrotog að þeir örfáu gerendur sem eru sakfelldir fyrir dómstólum þurfi ekki að verja sekúndu bakvið lás og slá.
Í nágrannaríkjum okkar er ólöglegt úthluta jafn mildum refsingum og skilorði til gerenda sem fremja alvarleg brot gegn lífi og limum annarra. Fólk sem nauðgar, myrðir og níðist á börnum getur ekki fengið alfarið skilorðsbundinn dóm, það er beinlínis móðgun við grundvallarhugmyndina um réttlæti og ógnar því trausti sem lífsnauðsynlegt er að fólk beri til réttarkerfisins. Sömu lög þyrfti að taka upp á Íslandi!
Við krefjumst þess að lögum verði breytt þannig að skilborðsbundin refsing eigi ekki við þegar um jafn alvarlegt brot og nauðgun er að ræða. Refsingar fyrir grófustu glæpina þurfa að endurspegla alvarleika þeirra og afleiðingarnar fyrir þolendur – og samfélagið í heild!
If you want us to advertise this petition on Google and Facebook to those people who may be interested, please donate.